Styrkveitingar á vegum erfðanefndar landbúnaðarins
Viðmiðunarreglur
Meginhlutverk erfðanefndar landbúnaðarins er að vinna að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði. Í því skyni hefur nefndin ákveðið að verja fjármunum í að styrkja einstök afmörkuð verkefni sem falla að þessu hlutverki. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á eftirfarandi sviðum:
- rannsóknir er lúta að varðveislu og viðhaldi á erfðaauðlindum í landbúnaði.
- lokaverkefni til prófs á háskólastigi er tengjast varðveislu og/eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði.
- aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri varðveislu og/eða nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði.
- kynning og fræðsla fyrir almenning um erfðaauðlindir í landbúnaði og gildi þeirra.
Um styrki þessa geta sótt bæði einstaklingar eða félagasamtök sem hafa það að markmiði að stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í íslenskum landbúnaði. Að jafnaði verða veittir styrkir á bilinu kr. 200-700 þús. Þrír fjórðu hlutar styrksins verða greiddir út við upphaf verks og fjórðungur þegar skýrslu hefur verið skilað við verklok.
Eftirfarandi verkefni hafa fengið styrk frá erfðanefnd landbúnaðarins. Að auki hefur verið greiddur stofnfjárverndarstyrkur til geitfjáreigenda frá því að nefndin tók til starfa.
Heiti verkefnis | Umsækjandi | Ár |
---|---|---|
Verkefni við LBH um skýrsluhald og ræktunaráætlun fyrir forystufé (BS 120 verkefni) | Sigríður Jóhannesdóttir | 2004 |
Erfðasamsetning laxa í Elliðaánum og hugsanlegar breytingar á henni.(MS verkefni H.Í.) | Leó A. Guðmundsson | 2004 |
Frostþol alaskaaspar (MS verkefni við H.Í.) | Freyr Ævarsson | 2004 |
Kortlagning erfðamarka sem tengjast sumarexemi í hrossum | Sigríður Björnsdóttir Embætti yfirdýralæknis | 2004 |
Styrkur til að koma á fót framleiðslu geitamjólkur | Jóhanna Þorvaldsdóttir í samvinnu við Eirík Blöndal hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands | 2004 |
Í hestalitunum. Geisladiskur um hestaliti. | Jón H. Sigurðsson | 2004 |
Viðhald á berjarunnum | Ásdís Helga Bjarnadóttir | 2005 |
Erfðabreytileiki íslenska fjárhundsins | Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir | 2005 |
Erfðabreytileiki mjólkurpróteina hjá íslensku geitinni | Bragi L. Ólafsson | 2005 |
Genbanki fyrir íslenskt sauðfé | Sveinn Sigurmundsson | 2005 |
Rannsókn á erfðasamsetningu urriða í Öxará og Myrkravatni | Sigurður Guðjónsson | 2005 |
Uppruni íslenska hestsins (PhD verkefni) | Jón H. Hallsson v/ Gunnfríðar E. Hreiðarsdóttur | 2006 |
Greining á erfðabreytileika íslensku landnámshænunnar | Sigríður Hjörleifsdóttir o.fl. | 2006 |
Hönnun félagsmerkis fyrir Eigenda- og ræktendafélags landnámshænsna | Jóhanna Harðardóttir | 2006 |
Varðveisla yrkja ávaxta- og berjastofna í Kristnesi | Helgi Þórsson | 2006 |
Erfðafjölbreytileiki í íslenska kúastofninum (MS verkefni) | Jón H. Hallsson v/ Margrétar G. Ásbjarnardóttur | 2006 |
Uppruni íslenska hestsins (PhD verkefni) | Jón H. Hallsson v/ Gunnfríðar E. Hreiðarsdóttur | 2007 |
Gamlir berjastofnar í Kristnesi | Helgi Þórsson | 2007 |
Erfðafjölbreytileiki íslenska geitfjárstofnsins (MS verkefni) | Jón H. Hallsson v/ Birnu K. Baldursdóttur | 2007 |
Forystufé | Ólafur R. Dýrmundsson | 2007 |
Mynd um forystufé | Halldór Þorgeirsson og Guðný Halldórsdóttir Mynd gefin út á DVD | 2007 |
Erfðafjölbreytileiki í íslenska geitfjárstofnunum | LbhÍ/Jón Hallsteinn Hallsson | 2008 |
Kynningarefni fyrir landnámshænuna | Júlíus M. Baldursson | 2008 |
Erfðafjölbreytileiki í íslenska kúastofninum | LbhÍ/Jón Hallsteinn Hallsson | 2008 |
Geitfjársetur Íslands – undirbúningur að stofnun | BÍ o.fl. | 2008 |
Veggspjöld um geitfé, hunda og hæns | BÍ | 2008 |
Erfðafjölbreytni íslenskra landnámshænsna | LbhÍ/Jón Hallsteinn Hallsson | 2009 |
Molecular Diversity in Nordic Angelica Populations | LbhÍ/Magnus Göranson Nordgen o.fl. | 2009 |
Söfnun og varðveisla ræktaðra íslenskar yrkja loðvíðis og gulvíðis | LbhÍ/Samson B. Harðarson o.fl. | 2009 |
Styrkur til viðhalds sérstökum hrútum (af forystukyni t.d.) á sæðingastöðum | Búnaðarsamtök Vesturlands/Sigríður Jóhannesdóttir | 2009 |
Söfnun hafrasæðis og nýting | LbhÍ/Jón Hallsteinn Hallsson o.fl. | 2010 |
Aldingarðurinn í Kristnesi | Helgi Þórsson | 2010 |
Skrásetning gamalla túna | LbhÍ/Guðni Þorvaldsson | 2010 |
Verndun sérkenna í íslensku fé | Búnaðarsamtök Vesturlands | 2010 |
Athugun á erfðaefni forystufjár með tilliti til áhættuarfgerðar gegn riðu | Daníel Hansen Fræðasetur um forystufé og Áhugamannafélag um forystufé | 2017 |
Erfðamengi íslensku geitarinnar | Birna Kristín Baldursdóttir Erfðalindasetri LbhÍ | 2017 |
Genabanki sæðingahrúta | Kynbótastöð ehf | 2017 |
Ræktunar og kynningarstarf landnámshnunnar | Eigenda- og ræktendafélag landnámshænsna (ERL) | 2017 |
Verndun sérkenna í íslensku fé með tilstuðlan sauðfjársæðingastöðvanna í landinu | Búnaðarsamtök Vesurlands | 2017 |
Safeguarding the past legacy - for future barley breeding endeavors | LbhÍ/ Magnus Göransson ofl. | 2018 |
Verndun sérkenna í íslensku fé með tilstuðlan sauðfjársæðingastöðvanna í landinu | Búnaðarsamtök Vesurlands | 2018 |
Ætihvönn- lifandi minjar ræktunarsögu Norðurlanda | LbhÍ/Magnus Göransson ofl. | 2018 |
The breeders of local domesticates in the North Atlantic and their motives- an exploratory study | Christina Joensen ofl. | 2018 |
Íslensk búfjárkyn | Sigurður Már Harðarson | 2018 |
Erfðagreining á kynjahlutfalli í hrygningarstofnum laxfiska | Arnar Pálsson ofl. | 2019 |
Erfðabreytileiki og erfðatengsl urriða á Íslandi | Marcos Lagunas ofl. | 2019 |
Nýr gagnagrunnur og plöntuleit Yndisgróðurs, garð og landslagsplöntur | Steinunn Garðarsdóttir | 2019 |
Geitahald á Íslandi- greining á stöðugleika geitahalds í tímans rás | LbhÍ/Jón Hallsteinn Hallsson ofl. | 2019 |
Verndun sérkenna í íslensku fé með tilstuðlan sauðfjársæðingastöðvanna í landinu | Búnaðarsamtök Vesurlands | 2019 |
Skráning forystufjár | Fræðafélag um forystufé/RML | 2020 |
Hýsilval birkikembu og birkiþélu og áhrif þeirra á vöxt birkis | Skógræktin/Brynja Hranfkelsdóttir | 2020 |
Textagerð, hönnun og prentun á "Sögumiðum" | Slow Food í Reykjavík | 2020 |
Kyn og stórfiskagen í íslenskum laxveiðiám | Háskóli Íslands/Arnar Pálsson | 2020 |
Fjöldi landnámshænsna | Eigenda- og ræktendafélag landnámshænsna | 2020 |