Skrá þau svæði sem hafa varðveislugildi m.t.t. erfðaauðlinda skógræktar ásamt upplýsingum um þau, þ.m.t. kort sem sýna staðsetningu kvæma, klóna og afkvæmahópa.
Gera skrána og upplýsingarnar aðgengilegar á netinu.
Tryggja varðveislu þeirra svæða sem ekki eru í þjóðskógunum.
Halda áfram að afla þekkingar á erfðum og aðlögun birkis með rannsóknum.
Afla þekkingar á erfðum og aðlögun annarra innlendra trjátegunda.
Skilgreina Bæjarstaðaskóg sem erfðaverndarskóg og tryggja að hann stækki að flatarmáli og endurnýi sig.
Kanna hvort önnur skóglendi skuli njóta slíkrar verndar.
Garð- og landslagsplöntur
Taka saman skrá yfir mikilvægar tegundir og yrki, skrá uppruna þeirra og gera yfirlit yfir útbreiðslu þeirra og notkun.
Skrá staðsetningu mikilvægra hópa og einstaklinga plantna og tryggja varðveislu þeirra.
Auka rannsóknir á íslenskum garð- og landslagsplöntum.
Tryggja aðgengi ræktenda að móðurplöntuefniviði til fjölgunar mikilvægra tegunda.
Gera skráningar og upplýsingar aðgengilegar á netinu.
Tryggja að komið verði upp nýjum söfnum mikilvægra garð- og landslagsplantna á vegum opinberra aðila.
Koma upp samræmdri skrá yfir söfn garð- og landslagsplantna og staðsetningu þeirra.